Sagan okkar
Rótgróin fjölskyldurekstur síðan 1953
Efnalaugin Björg á Háaleitisbraut hefur ávallt verið í eigu sömu fjölskyldunnar og þriðja kynslóð fjölskyldunnar hefur tekið við rekstri félagsins Upphaf Efnalaugarinnar má rekja til þess þegar Magnús Kristinsson, fæddur árið 1923, keypti hana árið 1953. „Afi minn kaupir efnalaugina sem var þá staðsett á horninu við Framnesveg og Sólvallagötu. Hann flytur síðan starfsemina yfir á Háaleitisbrautina þrettán árum síðar. Tengdasonur hans, og pabbi minn Kristinn Guðjónsson, kemur síðan inn í reksturinn árið 1984 auk dóttur afa míns. Árið 1987 opnar efnalaugin síðan Efnalaugina Björg í Mjódd þar sem frændfólk mitt rekur og þar er einmitt þriðji ættliður líka tekinn við. Rekstrareiningarnar eru reknar í sitt hvoru lagi frá árinu 2000 en áherslan er ávallt á persónulega þjónustu og vönduð vinnubrögð.“ segir Kristinn.

Gildin okkar
Slagorðið okkar gæði, þekking og þjónusta endurspeglar allt sem við gerum. Við leggjum metnað í vandaða vinnu, byggjum á áratuga reynslu og leggjum okkur fram um að veita persónulega og áreiðanlega þjónustu við hvern viðskiptavin.
Vinnulagið okkar
Vinnuferlar okkar byggja á áratuga reynslu og faglegum aðferðum. Við veljum alltaf þá aðferð sem hentar best hverju verkefni fyrir sig til að tryggja örugga, vandaða og áreiðanlega niðurstöðu.

Við Höfum átt trygga og góða samstarfsaðila í gegnum tíðina:
Algengar spurningar
Er hægt að fá hreinsun samdægurs?
Er opið um helgar?
Hver er munurinn á þurrhreinsun og þvotti?
Þarf ég að flokka flíkur áður en ég kem með í hreinsun?
Get ég komið með heimilisþvott?







